Texti fyrir kór 4. bekkjar

Nemendur í 4. bekk munu nú, líkt og áður, syngja með Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar þegar kveikt verður á jólatré bæjarins laugardaginn 3. desember kl. 17:00.

Við höfum æft lögin í tónmennt og kórtímum og nú teygja æfingarnar sig heim. Nemendur fengu blað með textanum í gær og í dag með þeim fyrirmælum að læra hann utanbókar. Það verða sko engin textablöð uppi á sviði. :)

En hér er tengill í blaðið á rafrænu formi ef einhver hefur týnt sínu eða langar bara í fleiri.

 

Enn hér…

Við erum komin aftur í loftið! Engar uppfærslur hafa komið inn á síðuna undanfarið vegna tæknilegra örðugleika en á meðan hefur efni hrannast upp. Ég set inn eitthvað af efni við fyrsta tækifæri, svo nú geta allir hlakkað til.

En dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember, og þar sem hann ber upp á starfsdegi hjá okkur í Holtaskóla, þá ætlum við að taka forskot á sæluna og halda upp á daginn 15. nóvember. Mikil og góð dagskrá er að taka á sig mynd, en á öllum stigum stendur til að nemendur syngi saman lagið “Á íslensku má alltaf finna svar” sem flestir ættu að þekkja. Nemendur munu æfa lagið ásamt umsjónarkennara nú í vikunni, en textann má finna hér á síðunni undir flipanum “söngtextar”.

3. bekkur og Óskasteinar

Í 3. bekk og annarsstaðar syngjum við stundum lagið Óskasteinar, bæði því það er svo fallegt og líka því það er ágætt til þess að hita upp röddina. Um daginn tók ég upp 3. bekk að syngja lagið svo þau gætu heyrt í sjálfum sér, því það er alltaf jafn spennandi.

Birgitta og María taka lagið

Ég hef ekki verið eins duglegur undanfarna daga og til stóð að uppfæra síðuna, en ég er á fullu að koma fréttasíðu skólans, stakkur.com, í gang. Ég hvet ykkur til að líta þangað inn og sjá fréttir um skólalífið frá sjónarhorni nemenda, en það eru nemendur á unglingastigi sem sjá um síðuna.

En nú er komið að uppfærslu og ég ætla að skella hér inn upptöku af Birgittu og Maríu í 4. bekk að syngja lag úr Konungi ljónanna. Undir lok eins kórtíma báðu þær um að fá að syngja þetta inn á upptöku og það var ekki nema sjálfsagt.

Gjörið svo vel.

Frumsamið í 5. bekk

Andri og Magnús í 5. bekk sömdu nýjan texta við lagið Gestalistinn og fluttu fyrir samnemendur sína sem höfðu gaman af, enda heitir þeirra útgáfa Bekkjarlistinn og er um bekkjarfélaga þeirra í 5. EÞ.

Anna og Alma í 5. bekk sömdu rappljóðið Bangsa og fluttu fyrir nokkra bekkjarfélaga sína. Hér er það:

Trumbusláttur í 4. bekk

Krakkarnir í 4. bekk voru að spila á slagverk í tíma í dag og þau tóku sig svo vel út að ég smellti af þeim nokkrum myndum.

Hér er svo hljóðdæmi:

Frumsamið í 5. bekk

Þegar ég var að taka upp söng í kórtíma voru nemendur sem vildu fá að syngja eigin lög inn á upptöku. Hér er afraksturinn.

Sunna og Birta syngja lagið „Kreppan“:

Svo sungu Adam og Sigurður lag eftir Adam:

Kóræfing hjá 5. bekk og trumbusláttur hjá 4. bekk.

Í kór 5. bekkjar fengu nemendur Vísur Vatnsenda-Rósu til söngs. Í tímanum áður lærðu þau fyrstu línurnar en nú tókust þau á við allt lagið. Í lok tímans tókum við upp árangurinn, en það verður gaman að bera hann saman við lokaafurðina síðar meir.

Nemendur í 4. bekk lömdu húðir á djembe-trommum og lærðu nokkra takta. Hér fyrir neðan má heyra í Svölu Rún og Bergey spila með mér.

Svo má hér heyra allan bekkinn spila sama taka, nú skipt í þrjá hópa sem leika hver á eftir öðrum. Þau voru það mörg að nokkur þeirra spiluðu á gólftrommu. Heyrir þú hvenær það gerist?

3. bekkur á stofugangi

Nemendur í 3. bekk gengu með mér í stofur síðasta miðvikudag til að syngja Ljósalagið og Meistari Jakob á nokkrum tungumálum með nemendum unglingastigs og 1. bekkjar.

Unglingarnir voru svolítið feimnir við okkur og ekki voru allir á því að taka undir sönginn, en allir sem fengu krakkana í heimsókn voru mjög ánægðir.

Rúnar Júlíusson

runar

Eftir Hjalta, Kristófer og Axel.

Rúnar var í hljómsveitinni Hljómar sem starfaði um árabil þangað til hann lést. Rúnar spilaði á bassa og bjó í Keflavík.

Hann spilaði í GCD með Bubba Mortens. Rúnar fæddist í Keflavík 13. apríl árið 1945 og var fremur stilltur í æsku.

Hann er búin að gera 21 plötu. Þegar hann var fimm ára söng hann Jesú bróðir besti inn á segulband fyrir afa sinn.

Hljómsveitin hét Geimsteinn. Árið 1996 kom í ljós að rúnar fæddist með hjartagalla og þurfti að gangast undir erfiða aðgerð, en hann reis tvífeldur úr þeirri raun.

Hann spilaði alveg þangað til að hann dó 5. desember 2008.

Hann og Bubbi spiluðu oft saman t.d á afmælistónleikum Bubba. Þeir voru í mörgum hljómsveitum saman.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.