Posted by: DrumaTix | október 6, 2008

Guitar Hero

[Atli í 8. bekk skrifaði]

Guitar Hero er mjög frægur leikur þar sem maður fær lítinn gítar í hendurnar sem er í laginu eins og Gibson SG, Les Paul eða Kramer. Á gítarnum eru fimm takkar í grænum, rauðum, gulum, bláum, og appelsínugulum lit. Í leiknum koma mörg af frægustu rokk, popp og djass lögum allra tíma (nema það eru engin AC/DC lög) og til þess að spila þarf maður að ýta á takkana og flipa fyrir ásláttinn. Síðan getur maður spilað í nokkrum þyngdarstigum, þ.e. easy, medium, hard og expert. Hægt er að fá leikinn fyrir PC, PS2, PS3, Xbox 360. Þegar maður spilar í career mode þá lendir maður í guitar battle á móti Tom Morello, Slash, og Lou sem er nokkurs konar endakarl. Þegar maður vinnur hann vinnur maður leikinn og síðan fær maður að spila lag sem heitir Trough the Fire and the Flames með Dragonforce. Einnig er hægt að spila leikinn í multiplayer mode og þá getur maður spilað mer vinum sínum og unlockað fleiri lög. Við mælum mjög með þessum leik – hann ownar allt!


Leave a response

Your response:

Flokkar