Nú hafa orðið smiðjuskipti og nýr hópur úr 4.-5. bekk er kominn í tónmennt, allt stúlkur. Í þeim þrem kennslustundum sem nú eru að baki hafa stúlkurnar spilað á trommusett, leikið, sungið heilan helling og lært taktheiti ýmiskonar. Nú eru þær í óða önn að undirbúa hljóðsögu, en hún er eitt meginþema smiðjunnar hjá 4.-5. bekk. Nemendum var skipt í tvo hópa við vinnslu fyrstu sögunnar og þegar þetta er ritað er annar hópurinn að æfa flutning sögunnar inni í einni af minni tónlistarstofunum. Hinn hópurinn lauk æfingunum fljótt og fengu því að skreyta sig með hverju sem þær fundu í búningakassanum. Nú eru þær búnar að klæða sig upp í gamaldags stíl og æfa söguna með tilþrifum.
Afraksturinn verður án efa frábær og skilar sér innan tíðar á myndband.


