Posted by: DrumaTix | mars 24, 2009

Sálin hans Jóns míns

salin

Höfundar: Adam og Ingimar Örn

Bítlavinirnir Rafn Jónsson og Jón Ólafsson ákváðu í febrúar 1988 að stofna sálar-band. Þeir fengu svo þriðja meðliminn, bassaleikarann Harald Þorsteinsson auk Guðmundar Jónssonar úr Kikk og Stefáns Hilmarssonar úr Sniglabandinu. Hljómsveitin hlaut síðan nafnið Sálin hans Jóns míns.

Fyrsta plata þeirra, „Syngjandi sveittir“  kom út árið 1988 og  á henni voru t.d. lögin „Á tjá og tundri“, „Kanínan“, „Syngjandi sveittir“ og „Sókrates (Þú og þeir)“.

Árið 2006, þann 15 september héldu Sálin hans Jóns míns og Gospelkór Reykjavíkur gospeltónleika í Laugardalshöllinni. Hugmyndin kom upp í Sjallanum á Akureyri þegar trommarinn, hann Jóhann talaði við Óskar Einarsson stjórnanda kórsins um að halda þessa tónleika.
Fyrir þessa tónleika voru samin tvö ný lög, „Þú trúir því“ og „Handrit lífsins“, það fyrrnefnda eftir Guðmund Jónsson og Stefán Hilmarsson en það síðarnefnda eftir Guðmund Jónsson.

Veturinn 2008 gáfu þeir út safnplötu sína „Hér er draumurinn“ og þar koma fram þeirra bestu lög.


Leave a response

Your response:

Flokkar