Nemendur í 4. bekk munu nú, líkt og áður, syngja með Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar þegar kveikt verður á jólatré bæjarins laugardaginn 3. desember kl. 17:00.
Við höfum æft lögin í tónmennt og kórtímum og nú teygja æfingarnar sig heim. Nemendur fengu blað með textanum í gær og í dag með þeim fyrirmælum að læra hann utanbókar. Það verða sko engin textablöð uppi á sviði.
En hér er tengill í blaðið á rafrænu formi ef einhver hefur týnt sínu eða langar bara í fleiri.