Posted by: styrmir | maí 25, 2008

Fedde Le Grand

Fedde le Grand

[Eftir Sindra Stefánsson í 8. bekk]

Fedde le Grand er plötusnúður, eða öðru nafni DJ. Hann fæddist í Utrecht í Hollandi árið 1977 og byrjaði feril sinn ungur. hann er góður Íslandsvinur og hefur spilað hér áður í byrjun ársins 2007. Á svipuðum tíma var lagið hans „Put your hands up for Detroit“ í mikilli spilun, enda heimsfrægt og líklegt að þið þekkið það þegar þið heyrið það.
Hann spilaði í hollenskum klúbbum og meira að segja þeirra bestu klúbbum, allt þar til hann byrjaði að búa til sína eigin tónlist árið 2001. hann fór fyrstu tónleikaferð sína um heiminn og kom meðal annars við hér á landi, Indónesíu, Ástralíu, Nýja Sjálandi og endaði í Bandaríkjunum á WMC hátíðinni á Miami. Fedde fór heim með þrjú verðlaun af WMC hátíðinni: „Best breakthrough solo artist“, „Best breaks/electro sound“ og „Best underground house track“.

Posted by: styrmir | maí 25, 2008

Viðtal við Mugison

Mugison

[Þórhallur í 8. bekk tók viðtal]

Fullt nafn?
Örn Elías Guðmundsson

Hvar og hvenær fæddistu?
Í Reykjavík 4. september 1976.

Hvenær byrjaðiru í tónlistinni?
Um fermingu, þegar ég fékk fyrsta gítarinn minn.

Hver er uppáhalds hljómsveitin þín og tónlistarmaður?
Ætli uppáhalds hljómsveitin mín sé ekki Led Zeppelin og uppáhalds tónlistarmaðurinn Tom Waits.

Hvað er uppáhalds lagið þitt?
Það er Since I’ve Been Loving You með Led Zeppelin.

Hvaða tónleikar eru þeir best heppnuðu sem þú hefur spilað á?
Þegar ég var á spáni í borg sem heitir Barcelona á tónlistarhátíðinni Zonar vorið 2004.

Hefur einhverntímann verið búað á þig á tónleikum?
Nei, það hefur ekki enn verið búað á mig en á einum tónleikum heppnaðist dagskráin ekki alveg nógu vel og það voru margir sem löbbuðu út.

Hverjum finnst þér skemmtilegast að spila með?
Ég verð að segja Adda trommuleikara og Guðna bassaleikara.

Hvað er uppáhalds gítarinn sem þú átt?
Það er Gibson kassagítarinn minn sem er að verða 50 ára.

Geturðu sagt frá skemmtilegustu eða skrítnustu upplifuninni þinni á ferlinum?
Ég var veikur þegar ég átti að spila á tónleikum og ég lét mig hafa það og fór á svið og kúkaði á mig.

Posted by: styrmir | maí 25, 2008

Um tónlistartímaritið Nacho

Nemendur í 8. bekk voru í vali í tónmennt og þar var ráðist í útgáfu tónlistartímarits. Til stóð að gera þetta með raunverulegu fyrirkomulagi, þ.e. safna auglýsingum og senda 12-16 síðna blað í prentun hjá prentsmiðju. Fyrirheitin voru góð en eftirfylgnin minni þannig að þegar upp var staðið höfðum við efni í ca. 4 síðna blað. Lítið vit var í að gefa svo fáar blaðsíður út með miklu veseni þannig að ég tók þá einræðisákvörðun að breyta útgáfuforminu í vefmiðil.

Greinarnar sem áttu að birtast í blaðinu verða því settar inn á þetta blogg og flokkað undir “Tónlistartímaritið Nacho”.

« Newer Posts

Flokkar